Færsluflokkur: Sjónvarp
9.2.2009 | 19:00
Hörður Torfa. og rauði fáninn
Í morgun var Hörður Torfason mættur við Seðlabankann ásamt fleirum. Var tilgangur hópsins sá, að koma í veg fyrir að bankastjórar bankans kæmust til vinnu sinnar. Allt í lagi með það. Hitt þótt mér lakara, að Hörður veifaði þarna rauðum fána í sovétskum stíl, með stjörnu að hætti Leníns og Stalíns, en í staðinn fyrir hamar og sigð, gaf að líta pönnu og sleif á miðjum fánanum.
Ég hef sjáfur tekið þátt í mótmælaaðgerðum á Austurvelli og taldi þær nauðsynlegar, til að koma fyrri ríkisstjórn í skilning um, að þjóðin æskti fjarveru hennar. En ég gat ekki betur séð, en fólkið þarna á Austurvelli væri að krefjast frelsis, ekki helsis. Væri nú ekki ráð, að Hörður Torfason gætti þessa, áður en hann veitir sjálfum sér Lenínorðuna?
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)



aevark
athena
baldurkr
bergthora
birgitta
bjarnihardar
blekpenni
ea
eggmann
esgesg
forvitin
fullvalda
gattin
gerdurpalma112
gretaulfs
gudrunmagnea
gullilitli
guttesen
hallibjarna
hallormur
heidistrand
hildurhelgas
himmalingur
hordurhalldorsson
hugdettan
ingibjhin
jakobjonsson
jam
jari
jolasveinn
jonerr
jonvalurjensson
juliusvalsson
kiddip
larahanna
lehamzdr
leifur
lydur
madddy
mariakr
mosi
nimbus
nonniblogg
olii
oliskula
pallieliss
possi
ragnar73
ragnargeir
safi
siggisig
snjolfur
strida
sunna2
svei
thjodarheidur
thorasig
topplistinn
toshiki
vefritid
vest1
zunzilla
vinstrivaktin




